
Reikningshald
og Skattskil
Fyrirtækja þjónusta
Við veitum víðtæka og heildstæða bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki, einkahlutafélög og félagasamtök af öllum stærðum. Við mætum þörfum fyrirtækja jafnt fyrir stóra sem smáa. Við vinnum í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar og leggjum metnað í skýr samskipti og vönduð vinnubrögð, þar sem þjónustan er alltaf aðlöguð að umfangi rekstrarins og þeim skilum sem sinna þarf á hverjum tíma. Hvort sem um er að ræða stofnun nýs félags, samruna eða daglegan rekstur, bjóðum við upp á trausta leiðsögn og sjáum um alla nauðsynlega pappírsvinnu og umsýslu frá upphafi til enda.
Öllum þáttum fjárhagsbókhaldsins, svo sem færslum og afstemmningum er sinnt af nákvæmni og aðlagað að starfsemi hvers fyrirtækis. Bókhaldið er að öllu jöfnu fært í DK viðskiptahugbúnaði, en einnig er í boði bein tenging við bókhaldskerfi þíns fyrirtækis ef óskað er. Við tökum að okkur alla launavinnslu af fullkomnu öryggi og stundvísi, óháð fjölda starfsmanna. Það felur í sér gerð tölvukeyrðra launaseðla, skilagreinar til banka, staðgreiðsluskatta, tryggingagjalds, lífeyrissjóða og stéttarfélaga, ásamt launamiðum og forskráningu upplýsinga til Skattsins.
Að bókhaldsárinu loknu sjáum við um gerð ársreikninga og tryggjum að öllum lögbundnum skilum sé mætt í fullkomnu öryggi á réttum tíma, ásamt því að bjóða upp á milliuppgjör sé þess óskað. Markmið okkar er að veita örugga og vandaða þjónustu svo þú og þitt teymi getið einbeitt ykkur að framgangi rekstrarins.
VIÐSKIPTAHUGMYND
Það getur verið erfitt að hefja nýjan rekstur. Í samstarfi við okkur þarftu ekki að hafa áhyggjur af flóknum fjármálum, saman finnum við skynsömustu leiðina til að koma rekstrinum af stað.
VIÐ HLUSTUM
Við veitum faglega leiðsögn í bókhaldsmálum og svörum fyrirspurnum af skýrleika, óháð stærð rekstrarins. Þjónusta okkar er sveigjanleg og aðlöguð að þörfum hvers viðskiptavinar.
SÉRSNIÐIÐ
Saman förum við yfir stöðuna og myndum sérsniðna lausn sem hentar þínu fyrirtæki.
LAUSNIR
• Fjárhagsbókhald
• Afstemningar
• Launavinnsla
• Gerð lögbundna skilagreina þ. á m..
• Fjármagnskattskýrslur
• Gistináttaskýrslur
• Ársreikninga og milliuppgjör
• Virðisaukaskattsuppgjör
• Skattframtöl
• Áætlanagerð
• Fjármálastörf þ. á m..
• Gjaldkerastörf fyrir fyrirtæki, húsfélög og félagasamtök
• Gerð sölureikninga
Bókhald
-
Skráningu bókhaldsgagna
-
Afstemmingu bankareikninga
-
Viðskiptamannabókhald
-
Virðisaukaskattsuppgjör
-
Launavinnslu
-
Árslokavinna
Launavinnsla
-
Útreikning launa
-
Gerð launaseðla
-
Skilagreinar vegna staðgreiðslu
-
Skilagreinar vegna lífeyrissjóða og stéttarfélaga
-
Orlofsuppgjör
-
Launamiða og önnur lögbundin skil
Virðisaukaskattur
-
Flokkun og yfirferð fylgiskjala
-
Útreikningur á innskatti og útskatti
-
Gerð og rafræn skil á VSK-skýrslum
-
Eftirlit með gjalddögum og skilafrestum
-
Leiðréttingar og uppgjör tímabila
-
Gagnaöflun og skil til opinberra aðila
Ársreikningar
-
Gerð ársreikninga
-
Gerð skattframtala
-
Yfirferð bókhaldsgagna fyrir skil
-
Samantekt gagna vegna ársloka
-
Rafræn skil þar sem það á við
Fjárhagsbókhald
-
Færslur og daglegt bókhald
-
Mánaðarlegar og árlegar afstemmningar
-
VSK-uppgjör og skil
-
Færslur í dK viðskiptahugbúnaði
-
Nettenging við þitt eigið bókhaldskerfi
Okkar áherslur
-
Persónuleg þjónusta
-
Traust samstarf
-
Fagleg vinnubrögð
-
Góð samskipti
-
Áreiðanleg skil