

Reikningshald
og Skattskil
Skilningur
Samvinna
Traust
Árangur
Persónuleg þjónusta í bókhaldi, launavinnslu og skattskilum
Hjá Reikningshald og Skattskil ehf. færð þú faglega og áreiðanlega þjónustu á sviði bókhalds, launavinnslu, ársreikninga og skattskila. Við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu fyrir einstaklinga, sjálfstætt starfandi aðila, félög og fyrirtæki. Þjónustan tekur mið af umfangi og þörfum hvers viðskiptavinar. Okkar markmið er náið og gott samstarf við viðskiptavini, þar sem persónuleg þjónusta, opin samskipti og vönduð vinnubrögð eru alltaf í fyrirrúmi. Leyfðu okkur að einfalda reksturinn svo þú getir einbeitt þér að því sem þú gerir best.
Lausnir



Bókhald á mannamáli
Reikningshald og skattskil ehf. er áreiðanlegur bakhjarl í þínum rekstri. Saga okkar nær aftur til ársins 2001 þegar Jón Þór stofnaði fyrirtækið og allt frá upphafi höfum við lagt metnað í traust samstarf, gagnkvæmt öryggi og góð vinnubrögð.
Gott viðskiptasamband er okkur mikilvægt og við byggjum samstarfið á trausti, skýrum samskiptum og hlýlegu viðmóti. Við kynnum okkur þinn rekstur vel og vandlega til að geta veitt skýr svör og verið til staðar þegar þú þarft á aðstoð að halda. Þjónusta okkar er sveigjanleg og við mætum þér þar sem þú ert, hvort sem þú vilt láta okkur sjá um alla bókhaldsþjónustu eða nýta DK Vistun bókhaldskerfið okkar til að gefa út þína eigin sölureikninga.
Við sjáum um allt ferlið og fylgjumst náið með mikilvægum dagsetningum og skilafrestum svo öllum lögbundnum skilum sé mætt í góðri reglu. Markmið okkar er einfaldlega að létta á þér áhyggjum, spara þér tíma og tryggja að bókhald og skil séu í góðri reglu, svo þú getir einbeitt þér af öryggi að því sem þér þykir skemmtilegast.
Jafnt fyrir stóra sem smáa
Hafðu samband
Hafðu samband hér
Við erum alltaf tilbúin að hjálpa og veita góð ráð.
Skrifstofan
Ármúli 36
108 Reykjavík
Sími 5519100
Fyrsti fundurinn þér
að kostnaðarlausu
Við vitum að það getur verið flókið að finna réttu lausnina og þess vegna erum við hér til að hjálpa. Bókaðu fund með okkur og við förum yfir málin í sameiningu.





